Afmæliskveðja

Elsku Hafdís!

Innilegar hamingjuóskir með afmælisdaginn og njóttu dagsins vel!!

Bestu kveðjur

Áslaug mágkona. 


Alltaf jafn sæt og fín

Elsku besta Hafdís.

 Innilegar hamingjuóskir á þessum merku tímamótum kæra mágkonaSmá spakmæli frá uppáhaldsmágkonunni Heart " Lýstu upp morgundaginn með deginum í dag"Heart

Njóttu þín í París !  Heart  Afmæliskveðjur Solla og co


Afmælisstelpa

Elsku besta Dísa Lú!! Innilega til hamingju með afmælið í dag Grin

 Hafðu það sem allra, allra best í PARÍS!

 Bestu kveðjur, Brynja Aðalbergsdóttir.


Til lukku með daginn

Kæra Hafdís.  Ég óska þér til hamingju með daginn og vona að þú lifir vel og lengi...samt aðalega vel sko.  

Á þessum tímamótum hef ég ákveðið að skrifa þér nokkur heilræði sem ég hef lifað eftir og tel þau grunninn að mínu umtalaða langlífi.  

 1. Sinadráttur er betri en einginn dráttur.  

2. Ein gin er betri en einginn.

3. Ekki hendenni hendinni þegar þú kastar til hendinni.

4. Vertu alltaf vinur í hraun! 

5. Lífið er eins og kassi af konfekti, bragðast eins og papír en myndin á lokinu er falleg.  

 

Bestu afmæliskveðjur

Jóhann Fr. Friðriksson/viðhaldið hans Sólmundar  


Afmæliskveðja úr Kópavogi

Elsku besta Hafdís!

Innilegar hamingjuóskir með 40 ára afmælið.                                                                                Vona að dagurinn verði yndislegur, skemmtilegur og frábær eins og þú ert alltaf.                                                                                                                                                    

Góða skemmtun! Vor í París það getur ekki klikkað.

Knús og kossar Birna vinkona


Ástarkveðja frá eiginmanni

Elsku Hafdís mín!

Þá hef ég lokið við þetta nýmóðins hátækni afmæliskort og vona nú að sem flestir kvitti hérna á það með einhverjum hætti. Nú er klukkan farin að halla í tvö hér og þú sefur réttlátum svefni um miðja nótt á hótelherbergi í París og framundan er ævintýra-helgi í uppáhalds borginni þinni í góðum félagsskap. Ég vona að þið skemmtið ykkur vel þarna saman mæðgurnar og sólin brosi við þér á morgun, daginn stóra.

Innilega til hamingju með daginn elskan mín.

Ástarkveðja, Sóli 


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband