Þú eldist mun betur en ostur.........

....ENGIR MYGLUBLETTIR OG ALDREI NEIN FÝLA!!!Smile

Til hamingju með daginn kæra Hafdís. Vonandi nærðu að leyfa bragðlaukunum að njóta sín í París, það á jú alltaf að vera markmið félaga í BORÐ FYRIR ÁTTA hvar sem þeir eru í heiminum. Smjattaðu á framandi ostum, súptu á góðu víni og nartaðu í ilmandi croissant á morgnana.... Njóttu lífsins manneskja, eins og þér er svo sannarlega lagið.

Við hlökkum til að hitta þig og hina gleðigjafana í matarklúbbnum þann 19. maí. Þá verður þú nú reyndar að vera búin að hrista Frakkland af þér, því þá verður það ítalskur andi sem tekur völdin.

En að sinni:  Au revoir

Valli, Íris, Hlín, Jón og Váli.  UppáSkaga


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband