Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Elsku Hafdís frænka

Innilega til hamingju með 40ára afmælið,

Kveðja Margrét Jóna frænka og fjölskylda

betra seint en aldreiWink

 


Afmælis og heimkomukveðja

Jæja elsku stóra systir, ég varð að fá að vera með í þessu frábæra afmæliskorti sem að hann Sóli þinn var svo krúttlegur að standa fyrir.                                                                                             Þá erum við komnar heim úr þessari yndislegu afmælisferð til fallegurstu borgar evrópu, þetta var algjörlega ógleymanlegt að eyða þarna dögum með ykkur mömmu og spóka okkur um á strætum Parísar með góða skapið í farteskinu og vorilminn í loftinu. Þúsund þakkir fyrir frábæran félagsskap og ég óska þér enn og aftur innilega til hamingju með 40 árin. Kv. Bryndís sis

Loksins orðin jafngömul og ég.

kæra vinkona til hamingju með daginn, njóttu vel.

                                           Kær kveðja  Jón Óli.


Elsku Hafdís

Innilegar hamingjuóskir með 40 árin, bjarta framtíð.Wizard 

kærar kveðjur þínir vinir Mekkín og Gummi

Fullorðinsmerki

1.  Pottaplönturnar þínar eru á lífi og þú getur ekki reykt eina einustu.
2.  Þú gefur þér tíma til þess að taka af þér úrið áður en þú ferð að stunda kynlíf.
3.  Þú geymir meiri mat en bjór í ísskápnum.
4.  Klukkan 6 að morgni er fótaferðatími en ekki háttatími.
5.  Þú heyrir uppáhaldslagið þitt í matvörudeildinni í Hagkaupum.
6.  Þú fylgist með veðurfregnum.
7.  Vinir þínir giftast og skilja í staðinn fyrir að byrja og hætta saman.
8.  Sumarfríið þitt styttist úr þrem mánuðum í þrjár vikur.
9.  Bolur og gallabuxur eru ekki lengur spariklæðnaður.
10. Það ert þú sem hringir á lögregluna og kvartar yfir hávaða í nágrönnunum.
11. Eldri ættingjar hætta að segja kynlífsbrandara nálægt þér.
12. Þú hefur ekki hugmynd um hvenær pizzustaðir loka á nóttunni.
13. Bílatryggingarnar lækka en afborganir af bílaláni hækka.
14. Þú ert farin að borða salöt sem aðalrétt.
15. Þú færð bakverk ef þú sefur í sófanum.
16. Þú vaknar kl 9 á sunnudögum af því að "það er svo hressandi"
17. Út að borða og bíó er að fara út að skemmta sér en ekki bara byrjun á góðu kvöldi.
18. Þú verður slæm í maganum, ekki södd ef þú færð þér heila pizzu kl 3 að nóttu.
19. Þú ferð í apótekið til þess að fá þér íbúfen,ekki til þess að kaupa smokka eða þungunarpróf.
20. Vín undir níuhundruð kalli eru ekki lengur ágætiskaup.
21. Þú borðar morgunverð á morgunverðartíma.
22. Ég get ekki drukkið eins og ég er vön kemur í staðinn fyrir "Ég ætla aldrei að drekka aftur svona mikið"
23. 90% af tíma þínum framan við tölvuna fer í raunverulega vinnu.
24. Þú drekkur ekki lengur heima fyrir til þess að spara pening áður en þú ferð á bari.
25. Þú lest allan þennan lista og leitar í örvæntingu að einhverju sem á ekki við þig.

Til hamingju

Elsku besta frænka.

Til hamingju með daginn.

 Linda frænka og fjölskylda


Hamingjuóskir

Hafdís, Hafdís, Hafdís :-)

Til lukku með afmælið. Þetta er besti aldurinn ever!!!!!!

Mundu að allt er fertugum fært :-)

 

Kær kveðja,

Gústi og Sigga 

 


þúsund kossar og knúsar

Elsku Hafdís til hamingju með afmælið, þú ert besta frænkan í heiminum... Heart Við elskum þig útaf lífinu.InLove

þínar frænkur:

                          Aníta Lind og Sonja Bjarney KissingKissingKissing


Til hamingju með daginn :)

Kæra Hafdís

 Allt er fertugum fært, veit það búin að prófa.   Njóttu dagsins i París, vonandi á fínu hóteli.  :)

             Tilvera okkar er undarlegt ferðalag

             Við erum gestir og hótel okkar er jörðin

                                           Tómas Guðmundsson ,,Hótel jörð"

 Sjáumst síðar á syngjandi skemmtilegri stundu

gulros

Afmæliskveðja Svava Pétursdóttir 

 


afmæliskveðja frá kongens køben

hæ elsku dísa skvísa.innilega til hamingju með daginn.vonandi skemmtið þið ykkur vel í parís.kveðja; ósk og villi Køben.

Afmæliskveðja frá Óðinsvé

Elsku Hafdís frænka!  Innilegar hamingjuóskir í tilefni af stórafmæli þínu.  Njóttu þess að vera til.  Kær kveðja, Gummi frændi, Karlotta, Halldóra Jóna og Stefanía Lind Odense Danmörku.

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband