Fertug fríkaði hún út......í FRAKKLANDI!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Elsku bestasta Hafdísin okkar.

Innilegar hamingjuóskir á afmælisdaginn! Þú lítur alls ekki út fyrir að vera deginum eldri en fyrsta daginn sem við hittum þig.

Þú ert alltaf svo æðisleg, fjörug, hress, alltaf í banastuði og alltaf til í að skemmta þér. Þú gerir alla í kringum þig svo óendanlega ánægða og glaða að það hálfa væri nóg. :)

Okkur þykir svooooo vænt um þig elsku "stjúpmamma" okkar og þú ert sko algjör andstæða við vondu "stjúpurnar" í ævintýrunum. Þú ert besta "stjúpmamma" sem hægt er að óska sér og hver dagur er alltaf eins og ævintýri þegar við komum til ykkar pabba...hvar sem þið búið;);) Það hefði engin getað passað í þetta hlutverk betur en þú og við vorum svo heppnar að þið fylgduð veg örlaganna og hittuð hvort annað. Þannig eignuðumst við, eins og ég sagði áðan, bestu "stjúpmömmu" í HEIMINUM!!!!

En við höfum þetta ekki lengra:)

Skemmtu þér ótrúlega vel í París (vá hvað ég væri til í að vera með;) og njóttu þess að vera kominn á þennan aldur, þar sem hann er bestur af öllum;)

Kær afmælishveðja: Þínar Hildur og Agnes:) 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband